Jóhanna Margrét

JÓ Biaatch..

05.01.2009 10:09:28 / jomagu

Allt búið!!

Þá er komið að því, jólin eru að verða búin. Ég er búin að hafa það rosalega gott, borða mikið og enn meira nammi, svo það er kominn tími í að fara út að skokka og ná jólafitunni af sér. Áramótin voru rosalega fín líka, við gerðum tilbreitingu og vorum inná Húsavík, hjá Grétu og Adda. Eftir að vera búin að skjóta upp flestu þá fórum ég og Stefán eitthvað niður í bæ með nokkrum vinum hans. En svo var bara haldið heim á leið um 3 leitið.

Ég hef lítið meir að seiga, nema jú ég fékk hann bróður minn til að gera facebook fyrir mig svo nú er ég komin með þannig lagað;)

Annað hef ég nú ekki að seiga, það er bara þannig að ég nenni ekki að blogga svona blogg sem er..... ég fór og gerði þetta eftir það fór ég og gerði þetta..... það er svo einfaldlega leiðinlegt að lesa svona blogg svo ég skrifa þau ekki svona, og þess vegna blogga ég svona sjaldan, það er ekki svo mikið markvert að gerast í lífi mínu.

>

Þangað til næst..

jomagu


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 20:17:32 / jomagu

Okey kominn tími til!!


Það er alveg fullt sem er búið að gerast en ég nenni engann veigin að fara seiga frá því öllu, en kannski ég telji bara upp svona það helsta það var gistikveld og við gerðum aðra stuttmynd sem var betri en hin, uu það var hörpugleði og svo var samskólamót og þar var keppt í bandí og fótbolta, en ég náttúrlega gat ekki verið með nýbúin að meiða mig á fætinum og var frá í tvær vikur, hræðilegt alveg hreint ég misti af 6 Fótboltaæfingum og 6 íþróttatímum og aukþess að missa af að keppa á samskóla móti ég var að farast mig langaði svo að vera með, en til skaðabóta þá var ég þjálfari en það hefði kannski mátt ganga betur, samt gaman sko.

Æj þetta var það helsta en ég var ein heima á laugardagskveldið og Hafþór, Magnús og Andri komu í heimsókn, þeir vildu endilega horfa á prinsessuna og durtana svo ég varð að þeirra ósk og við horfðum á þá mynd sem þeim finnst voða skemmtileg. Allavega þá er það líka tíminn sem líður alltof alltof hratt sko ég er bara rétt að byrja í skólanum og svo bara komið jólafrí bráðlega. En kannski gaman að seiga frá því að ég fór á æfingu hjá landsliðsþjálfara karla í fótbolta á Raufarhöfn og það var bara fínt sko en fór svo á æfingu hjá honum líka inná Húsavík, já það var bara rosalega gaman.  Svo gengur skólinn bara rosalega vel en það er vesen með þessa frammhaldsskóla ég veit ekkert hvert ég stefni og þetta er bara vesen, kannski ég ætti bara að fara þangað eða þangað eða eitthvert allt annað og svo ef þetta er nefnt við enhvernt fullorðinn þá er alltaf sagt” þú hefur allan veturinn til að hugsa,, en ég bara uu ef tíminn líður svona hratt þá verð ég að fara ákveða mig, mér finnst ég ekki hafa nægan tíma, þetta hringlar allt saman í hausnum á mér, og svo er svo margt annað sem hringlar í hausnum á mér, æ veit ekkii hvort þið skiljið bullið í mér svo ég læt þetta gott heita.

>

Sjáum til ég þori engu að lofa að ég bloggi fyrir jól því ef ég lofa því þá geri ég það pottþétt ekki, svo við bíðum og sjáum til.... Commenta svo!!!

>

jomagu


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.10.2008 15:26:28 / jomagu

Akureyri dodgeball massacre

Okey Akureyri....

Jább ég fór á stuttmyndanámskeið með 9 og 10 bekk. Frá föstud. – Sunnud. Og til að byrja með fannst mér þetta bara ekkert spennandi hann var bara eikkað að tala og seiga frá og eikkað rugl og ég nennti þessu engann veginn. Ég náttúrlega bara ohh þarf ég að vera hér alla helgina og vera á þessu námskeiði 7 klukkutíma á morgun, en ég lét mig hafa það að mæta á laugardeiginum og sé ekki eftir því sko þetta var neflinlega nokkuð gaman sko. Við vorum að gera stuttmynd, fengum myndavél í hendurnar og höfðum klukkutíma og 40 mín í að finna hugmynd og taka upp. Við gerðum það og tókst rosalega vel nema þegar við fórum að skoða þetta í tölvunni sáum við að öll úti atriðin voru ónýt allt upplíst og vesen svo við þurftum að gera þau ölla aftur nema 2 sem sluppu nokkurnveigin. Ókey þegar við vorum búin að taka upp þá þurfturm við að klippa atriðin saman og svona, meðan allir fóru eitthvað, enhverjir fóru á Glerártorg, Auður og Guðrún fóru til ömmu sinnar og afa svo ég nennti ekki á Glerártorg svo ég varð eftir í skólanum sem við gistum í og sat og klippti myndina með smá hjálp Kidda. Auður og Guðrún komu svo aftur klukkutíma seinna og voru aðeins með mér í að klippa en það tók mig 3 klukkutíma að klippa 4 mínútna suttmynd. En þegar var búið að klippa allt þá átti eftir að laga hljóðið setja tónlist og margt fleira í sambandi við það. Ég sat enn og aftur fram á kvöld með nokkrum öðrum og var að vinna í því. Mér fannst reyndar mjög gaman að vinna í þessu. Þegar við vorum búin að klippa myndina setja hljóðið allt einsog það átti eftir að vera var bara eftir að setja kredidlistann( er bara alls ekki viss hvernig á að skrifa þetta) en já við bjuggum til hann og vá myndin var tilbúin, og hún kom nokkuð vel út skal ég seiga ykkur. Myndin okkar heitir sem sagt Akureyri dodgeball massacre. Á laugardags kvöldinu fórum við í bíó á myndina sex drive og hún var nokkuð góð bara. Eftir myndina gerðist lítið spennandi. Sunnudagsmorgunninn fínpússuðum við mynina og hún var svo klár og þá voru svo allar myndirnar sýndar sem voru tilbúnar og svo var námskeiðið bara búið við gengum frá og svo fórum ég Auður, Guðrún og Hafþór á Glerártorg í smátíma, um fimmleitið var svo lagt af stað heim á leið.  Þetta var semsé það helsta úr ferðinni, annars er lítið annað búið að gerast hjá mér svo látum þetta gott heita í bila.... nema jú það er starfsdagur í dag og því frí í skólanum annað er það nú ekki.

>

Jomagu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 20:15:59 / jomagu

Þá er loksins komið að því!!!

Skooo ég var klukkuð af systur minni, en þar sem ég nenni ekki að svara þessum spurningar lista þá ætla ég að koma með blogg, og einsog ég hef margoft sagt áður þá ætla ég að reyna skella hérna inn öðru hvoru svona hvað hefur á daga mína drifið,

Þar sem ég hef ekki bloggað síðan um páska þá ætla ég að koma með smá yfirlit yfir sumarið og síðustu dag!!!

Sumarið:

Einsog margir vita þá var ég að vinna á verkstæðinu Röndin, þegar ég hef sagt það þá hafa margir spurt,, Og hvað varst þú að gera þar?” ég ætla sem sagt að svara því, Ég var semsagt að vinna við að gera reykninga, sópa vaska upp, gera auðveldu störfin s.s umfelga gera við dekk og hjálpa pabba sem handlangari, svo hef ég líka verið að fara með honum í hitaveituviðgerðir annað var það nú ekki.

En þetta er nú ekki allt sem ég gerði í sumar aldeilis ekki, ég fór nú í útlöndin!! Ég og fjölskylda mín fórum saman öll níu, við ferðuðumst til Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs, en ég ætla ekki að vera rekja ferða söguna alla en svona það sem stóð uppúr var nú tívólíið, nokkur söfn, Noregur og svo að synda í vatninu í svíþjóð og vera þar það var bara alveg rosalega notarlegt:D

En í sumar var líka Ásbyrgismót og það var bara rosalega gaman og vann þar enhverja verðlauna peninga,

Ég er líka búin að vera á fullu í fótboltanum í sumar og er búin að vera keyra inná Húsavík tvisvar til þrisvar í viku á æfingar og leiki, og er afar þakklát þeim sem hafa keyrt mig, þar sem ég er búin að bæta mig mikið og spila mikið með Völsung og er búin að skora fullt af mörkum svo ég monti mig aðeins, en ég var með þeim markahæstu í liðinu og var ein af tveimur sem fengu framfaraverðlaun, svo nú stendur bikar uppá hillu heima hjá mér:D:D

Ég man nú ekki alveg eftir fleiru sem ég gerði.

En þá er komið að því skólinn er byrjaður og viti menn ÉG er komin í 10unda bekk!!!  En þetta er bara mjög fínt unglinga deildin komin með athvarf fyrir sig, þar sem kennara stofan var. Svo er búið að lengja skólann á sumum dögum og svona enhverskonar val eftir skóla en nenni nú ekki að útskíra það frekar. Svo er ég nú í nemendaráði og það fór á Landsmót Samfés núna um helgina, þeir sem vita það ekki þá fer nemendaráð þangaðog velur sér svona smiðjur ensog það er kallað og er í þeim í sex klukkutíma, ég valdi förðun og í henni fólst leikhúsförðun, en ég hélt að það væri eikkað svona að skerpa augun og svoleiðis en nei við vorum að læra að gera glóðuraugu og mar og oppna skurði og það var rosalega gaman, eftir smiðjurnar var frí tími og við fórum nokkur í fótbolta. Um kvöldið var hátíðarkvöldverður og í matinn var mexíkóskur matur en mér fannst hann ekkert sérstaklega góður nema þá bara dorítosið en það er nú ekki matur seiga flestir. Eftir matinn þá var ball og ég ásamt fleirum skemmtum okkur konunglega meðan aðrir skemmtu sér ekki eins vel, en á sunnudeiginum fórum við í sund nokkur saman og svo var bara lagt af stað heim í rútu, og þeir sem hafa ferðast langa leið í rútu vita að það er nú ekkert sérstaklega gaman, þar sem Samfés var haldið í Garði á Reykjanesi og það tók okkur 8 og hálfan tíma að keyra heim.

En jæja er þá ekki nóg komið í bili við heyrumst síðar.

>

Kv jomagu


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 09:36:59 / jomagu

Páskarnir:D

Hæ og hó páskarnir bara búnir og allt það.

Já á föstudaginn langa komu Þröstur, Kristjana,Maggi og Eysteinn hingað. Ég fór uppí fjöll á bretti og það var bara gaman sko svo bara kom ég heim og fékk gott að borða og sonna..... Svo daginn eftir vorum við bara að taka því rólega og ekki mikið að gerast þannig séð sko.

Páskadagur var bara ótrúlega skemmtilegur sko....... Fyrst var náttúrlega vaknað og farið að leysa þrautir til að finna páskaeggið sem var bara snilld. Eftir hádeigi þá var farið uppí fjöll eða svona um 12:D:D Ég, Eysteinn, mamma , Maggi og Rögnvaldur Viðar fórum ásamt Haffa, Ann-Charlotte, Brynjari og Bergþóri og þau komu á snjósleðum og fjórhjóli svo við fengum alltaf skutl upp í stað þess að þurfa að labba sem var óskup gott:D:D:D Svo kom alveg fullt meira af fólki og var uppí fjöllum. Við fórum samt heim um 4 leitið og þá komum við öll hingað heim og fengum kökur og eithvað gott að borða;), Haffi kom á fjórhjólinu hingað og ég og pabbi fengum að fara og prófa og þetta er náttúrlega bara snilld:D:D:D. Eftir það var bara borðað páskaegg og svo fengum við svín í matinn sem var hrikalega gott;).  Um kveldið sátum við bara og horfðum á sjónvarpið og höfðum það gottJ. Mánudagurinn var líka nokkuð góður sko.... Ég fór aftur uppí fjöll með Hafþóri, við vorum nú frekar löt og nenntum ekki að labba upp en svo létum við okkur hafa það og fórum tvær ferðir og þá komu Auður og Guðrún. Við fórum upp og svo komu Andri Þór og Eyþór á snjósleðum og skutluðu okkur upp... við vorum upppí fjöllum til að verða 4 og þá fórum við nú að fara heim:D þegar heim var komið þá fórum ég og pabbi og fengum fjórhjólið lánað hjá Haffa því nú er ég komin með æði fyrir þessu þetta er bara snilld, við vorum bara í u.þ.b. klukkutíma og þá var pabba orðið svo kalt að við urðum að hættaL. En þetta var samt gamanJ Svo horðum við á nýa Íslenska þáttinn sem er á stöð 1 mannaveiðar og það er nú bara ágætis þáttur skal ég seiga ykkur...... en páskarnir hjá mér eru bara búnir að vera góðir og ég hef skemmt mér ágætlegaJ

Nú sit ég hér og aðeins einn dagur eftir af páskafrí og það er skóli á morgunL  jæja læt þetta gott heita í bili;)

>

Jóhanna


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 21:09:37 / jomagu

Samfés og fleira

 

Samfés hvar á ég að byrja......

Föstudagur

Við lögðum nú eiginlega bara strax af stað þegar við komum í skólann. Við brunuðum alla leið í Varmahlíð og fengum okkur hamborgara;) eftir u.þ.b 30 mínútna stopp lögðum við í hann og stoppuðum ekkert á leiðinni fyrr en í Borganesi, nema smá til að hleypa strákunum út... En í Borganesi var fólk bara í því að fá sér ís og eitthvað í gogginn. Þegar allir voru búnir að því þá var lagt aftur af stað og á farfuglaheimilið, þar var ég með Auði, Guðrúnu, Silju, Grímu og Perlu í herbergi. Fengum okkur pizzu áður en haldið var á ballið... svo þegar komið var á ballið þá var svo ótrúlega mikið af fólki, fórum samt að sviðinu og ég var þar alan tíman eiginlega fremst, en váá hvað loftið þarna var þungt, allir hoppandi í ringum mann en ég lét mig nú hafa það og hafði gaman af:D þær hljómsveitir sem spiluðu voru, Ljótu hálvitarnir, Sign, Á móti sól, Páll Óskar og Bubbi, og þar að auki voru líka einhverjar skólahljómsveitir inná milli. Mér fannst Ljótu hálvitarnir, Á móti sól og Páll Óskar flott en Sign og Bubbi voru ekkert sérstakt...en mín skoðun ekki allra. Eftir ballið var bara farið á farfuglaheimilið og fólk bara eikkakð að spjalla, framm eftir kvöldi.

 

Laugardagur

Við vöknuðum við þessa ljúfu hringitóna okkar, því strákunum(Elvari, Hafþóri, Baldri og Einar) datt í hug að hringja í okkur um níu allar í einu,  en þannig hófst þessi falleigi dagur. Við fórum bara að hafa okkur til fyrir keppnina, og Silja, Gríma og Perla gerðu strákana rosalega fína fyrir atriðið. Þegar við komum í höllina var náttúrlega fullt af fólki og búið að raða upp stólum og sona en við sátum uppí í stúku bara.. keppnin sjálf var nú ekert sérstök... beið eiginlega allan tímann eftir að strákarnir kæmu og singu og svo hætti ég eigin lega bara að hlusta.Eftir keppnina fórum við í Kringluna og ég var bara eikkað að ráfa um með Auði og Guðrúnu, og tek það skírt framm að ég eiddi voða litlum pening eða bara rétt í nammi:D svo þegar Kringluferðinni var lokið var haldið í smáralindina og í bíó á semi pro sem mér fannst nú ekkert sérstaklega góð mynd... en það voru flestir sem fannst hún ágæt. Loks þegar myndin var búin var farið í keilu sem var bara snilld, og ég skal nú seiga ykkur það að ég lenti í öðrusæti í keiluJ á eftir Grímu;). Hitti líka Kristrúnu og Ívar, au komu í keiluhöllina að heilsa uppá mig;). En eftir keilu var svo bara farið á farfuglaheimilið, þar var nú horft á fréttirnar í tölvunni því Einar og þeir komu í fréttunum, baksviðs á keppninni þegar þeir voru búnir að syngja þá kom bara einhver fréttamauður og kallaði bara HVAR ER BEISIÐ???? Og vildi fá viðtal við þá:D en svo var bara eikkað spjallað og sonna framm eftir kvöldi, eða svona pínu framm á nótt:D

 

Sunnudagur

Ég átti nú afmæli á þessum deigi:D:D:D orðin 15 ára;) En allavega þurftum að vera búin að skila herberginu um tíu. Var búin að pakka öllu niður og fór með Silju og fleirum í pylsuvagnin við laugardagslaugina og hittum Dísu þar og hún gaf okkur ókeipis pylsu og kókómjólk:D:D:D En svo þegar við fórum á farfuglaheimilið aftur þá virkuðu ekki korin því klukkan var aðeins yfir tíu svo við þurftum að fá framlengingu til að ná í farángurinn og sonna. En þetta fór allt vel. Svo bara vorum við að bíða eftir að rútan kæmi og við myndum leggja af stað heim.  Svo bara fórum við heim og lítið að gerast á leiðinni bara svona svipað mikið stuð og á á leiðinni til Rvk en það var alveg ágætt stuð... fékk meira að seiga pakka frá Elvari, Hafþór, Auði og Guðrúnu, þau voru svo ljúf og keyptu köku og svo fékk ég bol og heyrnatól:D En svo var bara stuð á leiðinni heim....svo þegar ég kom heim þá tók ég því bara rólega og horfði á sjónvarpið og borðaði nammi:D en þetta var nú svona ferðin í grófum dráttum:D:D:D sem var nú skemmtileg:D:D:D.

 

Síðasta vika....

Já það er kannski ekki mikið búið að gerast núna þessa vikuna,komin í páskafrí, en nei ég þurfti endilega að verða veikL og er frekar veik núnaL en vona að ég nái mér uppúr þessu bráðlega....

 ég hélt smá afmælisboð á laugardaginn fyrir nokkra vini mína, bara svona pizzu og eikkað og svo var farið í húsið og sonna og þetta var alveg ágætt;)

annars er ég bara búin að vera hanga með Gogga og HaFFa

 

Frammundan.....

Njóta páskafrísins.... og borða páskaegg.....og láta mér leiðast;)


Jóhanna

og svo kommenta:!::!::!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 10:32:35 / jomagu

Jább svona er þetta!!!!

Eitt blogg.....

 

Fór inná Akureyri með mömmu, pabba og Silju. Byrjaði á að hitta Silju á Glerártorgi og við vorum bara ar að labba um og sonna.  Svo fórum mamma, pabbi, Þröstur og Ása í sund en ég og Silja í bæjinn, ég náttúrlega snillingurinn gleimdi öllum pening heima svo ég var peningalaus. En við löbbuðum aðeins um bæjinn en fórum svo á gististaðinn aftur. Það vorum við bara eikkað að fíflast og alveg ótrúlega skemmtilegur gluggi þar;) Um sjö leitið þá vorum við að fara út að borða, fórumá Krua siam sem er alveg ágætis staður. Svo eftir það var haldið á bláu könnuna og fengið kaffi og kakó, svo loksins það sem ég og Silja vorum búnar að bíða eftir allan daginn þá fórum við í leikhús, Sem var hrein snilld, hef nú bara aldrei farið á jafn skemmtilegt leikrit:D:D:D Þetta var svoooo GAMAN. Hló næstum því bara allan tíman:D:D:D. En lítið meira gerðum við svo en að fara bara heim daginn eftir....

 

Í gær fór ég í skólann og flestir úr 9-10 bekk fóru í skólaskipið Dröfn.  Það var nú alveg ágætt svosem en það var bara eitthvað verið að sýna okkur svona veiði færi og eitthvað þannig sem tengist svona bátum og veiðum og þannig. Það var svo kastað út og við veiddum smá af fiski og fengum að gera að... eða svona ég var meira í því að filgjast með þegar verið var að gera að ekki það skemmtilegasta sem ég veit um... en það voru líka nokkrir sjóveikir, en enginn ældi eða neitt þannig, já þannig fór þessi sjóferð þá. En ég kom heim með smá af fiski semég veit nú ekki hvað á að gera við, gef kannski kettinum hann bara;) Svo var ég voða lítið að gera í gær einsog vanalega, Hafþór og Goggi komu og við létum okkur bara leiðast,, svo eftir kvöldmar þá fórum við í íþróttahúsið og vorum samt lítið að gera.... en gerði voða lítð meira sit bara hér heima smá lasin en ekkert svo hroðalega mikið, vildi bara ekki verða meira veik því er náttúrlega að fara til Reykjavíkur á föstudaginn á samfés, og þa má nú ekki missa af því!!!!

 

En jæja læt þetta gott heita í bili..... ætla nú að reyna vera aðeins duglegri við að blogga en hef verið undafarið.....en sjáum nú til hvernig það gengur;)

 

Jóhanna


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 19:43:32 / jomagu

Jahá

Einmitt það er búið að suða í mér að fara blogga enda kominn tími á eitt blogg!!!

Já hvar á ég nú að byrja?

 

 8 febrúar þá átti Gríma fmæli og ég fór til hennar með Gogga og Hafþóri. Þá voru Gríma, Perla og Silja þarna að borða kræsingarnar svo vorum við bara eikkað að tjilla og sonna;)

 

Skólaferðalag 9-12 febrúar. Það fór nú ekki einsog ætlast var, til að gera langa sögu stutta. Við komumst ekki í fjallið fyrstadaginn og fórum því á skauta og sonna það var samt gaman sko;)  (æji man ekki öll smáatriðin svo seigi þetta bara svona nokkurn veigin). Við fórum svo að sofa um kveldið, en það voru ekki allir á því að fara sofa, því sumir voru að tala þangað til klukkan var farin að ganga 3. Það sofnu samt allir að lokum, en um morguninn var Hafþór orðinn veikur og þurfti að fara heim sem mér þótti leiðinlegtL. En seinna um daginn þá var farið í fjallið að renna sérJ sem var ótrúlega gaman, skellti mér bara strax í stólalyftuna með Auði og Guðrúnu. Svo komu Baldur og Einar og við vorum mikið í því að renna okkur saman. Seinni partinn var svo orðið frekar hvast og ákveðið var að fara aftur á gististaðinn, en það þurfti víst að ná í einhverja uppí fjall eða eikkað. Svo var bara farið í sund og eikkað þannig og svo bíó, og ég fór að sjá meet the spartans (kann ekki að skrifa þetta) með alveg fullt af fólk og þetta var nú alveg ágætis mynd. Eftir myndina þá var bara farið á gististaðinn og farið að sofa. Uuuu sunnudaginn var víst ekki hægt að fara í fjallið en við fórum á skauta í staðinn og fórum svo bara heim. En þetta var nú alveg skemmtilegt þó ekki hafi allt gengið upp, eða við fengum bara að fara einn dag í fjallið í staðinn fyrir þrjá.

 

Jæja svo var þorrablótið víst 16 febrúar og ég var að passa fyrir Kristínu Ósk.

 

Tónkvísl var svo 17 febrúar og ég fór með Gogga, Perlu, Elvari og Ke í bíl. Það byrjaði nú þannig að þegar við vorum að ná í Elvar þá ofhitnaði bíllinn og við þurftum að bíða í smá tíma en svo gátum við lagt í hann, stoppuðum aðeins á Húsavík í sjoppunni en svo héldum við áfram, og komum á Lauga þar hittum við fullt af fólki, við settumst niður en ákváðum svo að sitja uppi því það var betra útsíni. Silja og Gríma kepptu fyrir okkar hönd og stóðu sig með príði. En svo þegar þetta var búið þá fórum við bara heim og það var órtúlega gaman á leiðinni heimJ.

 

Já þetta var það helsta sem var búið að gerast. Þá er komið að því að seiga frá því sem á eftir að gerast;)

 

 

 Ég er nú að fara á AK á morgun með mömmu, pabba og Silju, erum að fara í leikhús að sjá fló á skinni, held að það sé bara mjög gott leikrit. Veit nú ekki hvað ég á að seiga meira um það.

 

7-9 mars erum við svo í Beisinu að fara til RVK því við komumst nú áfram í söngvakeppni samfés;) og við erum búin að vera selja kökur og safna flöskum og fullt til að fá pening og það hefur borgað sig erum komin eikkað yfir 120 þúsund. Svo er auðvitað afmælið mitt 9 mars þarna á sunnudeiginum;)

 

Jæja þá er þetta held ég komið allavega svona það helsta;) vona núna að einhverjir séu ánægðir, hehe;) Svo vil ég byðja ykkur um að kommenta!!!!

 

Jóhanna


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 17:30:18 / jomagu

Milkshake...:)

Hér koma nokkrir Punktar8)

 

  • Skólaferðalag 7-9 Febrúar á Akureyri! (Skíðaferðalag)
  • Gríma afmæli 8.Febrúar:D
  • Þorrablót 16.Febrúar:D
  • Tónkvísl 17.Febrúar
  • Þröstur átti Afmæli 2.Febrúar
  • Akureyri 1-3 Mars
  • 7-8 Suður á Samfés:haha:
  • 9.Mars Afmælið mitt:)

                               


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 22:38:52 / jomagu

Nokkrir punktar

Æji set bara nokkra punkta.

 

·        Fór á bretti inná AK ótrúlega gaman

·        Prófvika í næstu viku

·        Samskólamótið  Raufarhöfn 25 janúar.

·        Samfés 1 febrúar

·        Ætlar Einar að keppa?

·        Þröstur afmæli 2 febrúar

·        Öskudagur 6 febrúar

·        Skólaferðalag 7-9 febrúar

·        Gríma afmæli 8 febrúar

·        Tónkvísl 17 febrúar

·        Gríma og Silja ætla að keppa

·        Þorrablótið bráðum

·        Laugamótið bráðum

·        Annars er ekki mikið meira að gerast en þetta er svona á næsta leiti;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 19:18:23 / jomagu

Sýningar!!!! jólastress??? spenningur;)

Við erum búin að sýna wake me up before you gogo og það var bara snilld það gekk alveg ótrúlega vel, og það var bara svo gaman að leika, þetta var ótrúlega flott og við erum búin að fá mikið hrós og margir búnir að seiga hvað þetta var flott og tókst vel, og þeir sem sáu ekki þessar sýningar þeir misstu af milklu,

 

En já jólin eru frammundan og ég bara komin í jólafrí og skemmtilegt, litlu jólin voru á fimmtudaginn og það komu jólasveinar og alles. En svo er bara skatan á morgun og aðfangadagur á mánudag. Ég er hin salla rólegasta og ekkert stress í gangi en er farin að hlakka svolítið til;)

Ég seigi bara gleðileg jólog farsælt komandi ár.


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 22:28:42 / jomagu

1 des

Já gott fólk það er langt síðan ég bloggaði en ætlað að blogga smá núna. Það var menningardagur í dag og hann heppnaðist bara mjög vel að mínu mati.  Ég var í smá hlutverki í dagskránni þar en ég var að lesa upp ljóð, spila á saxafóninn, lesa upp fyrir skólann og syngja úr söngleiknum wake me up before you gogo en úr honum sungum við tvö lög, sem hefðu mátt vera aðeins betur æfð en vegna þess að það var ekki skóli á föstudag þá var ekki æft nógu vel, en þetta heppnaðist samt ágætlega fyrir því, og svo var hjlómsveitin DJamma að spila tvö lög og það var gaman og til að sjá myndbönd af því þá er hægt að fara inná 123.is/kopasker og í myndbönd.  Það var farið í bingó, og svo óheppin í þessum leik hef einu sinni unnið eikkvað á öllum þessum árum sem ég hef spilað bingó, en svo var líka þarna sölubásar og veiði leikur fyrir litlu krakkana en ég ákvað samt að skella mér í það og viti menn ég fékk nammi og liti. Auðvitað hápunktur dagsins var þegar jólasveinarnir komu og ég fór og náði mér í eina mandarínu hjá þeim, svo var farið að kveikja á jólatréinu og þar var dansað smá í kringum það og sungið en þá var bara allt búið og ég fór heim og  borðaði kökurnar sem ég vann í tombólunni, ég fór nefninlega og keypti mér þrjá miða á tombólu og þar vann ég  vetlinga, könnu og smartís og svo kökur. Annars er voða lítið hægt að seiga frá þessum deigi.  

 Á föstudaginn þar seinasta,(minnir mig) þá var gistikvöld í skólanum og það var voða lítið gert í byrjun, við fórum í sund frá tvö til fjögur og þá voru Perla, Gríma og Silja búnar að baka skúffukökur fyrir okkur, reyndar pínu brunnar en það var í lagi. Eftir það fórum ég, Silja,Auður, Guðrún og einhverjir að gera pizzurnar klárar, ég og Silja höfðum bakað átta pizzudeig kvöldinu áður. Þegar það var komið þá fengu allir sér að borða og mér fannst þetta ágætt, það urðu fjórar pizzur í afgang en það var nartað í þær alla nóttina. Um klukkan hálf níu fórum við uppá vist og gerðum allt tilbúið þar og horfðum á mynd, the man, hún var ágæt og svo átti að horfa á aðra mynd en hún var eikkað rispuð svo við gátum það ekki, þá var farið í bus og voða gaman hjá þeim sem voru í honum, ekert sérstakur leikur, en þegar leið á kvöldið þá voru einhverjir bara inní  herbergi í þeim leik meðan sumir voru bara farnir að sofa, ég nennti því nú ekki, klukkan tvö voru Magnús og Baldur í einhverjum leik um teiknimyndir og sumir voru orðnir pirraðir á því. Um þrjú voru flestir sofnaðir nema þeir sem voru í bus og ég og Magnús, ég var bara ekki þreitt. Fjögur voru allir sofnaðir nema ég og Magnús og svo um fimm voru allir sofnaðir nema ég, ég sofnaði ekki fyrr en sex og vaknaði níu svo svaf voða lítið þá. Þegar allir voru vaknaðir um tíu var byrjað að ganaga frá og svoleiðis og ég fór heim um ellefu, svo þetta heppnaðist allt alveg ágætlega. 

Leikrits æfingar í fullum gangi. Það á að sýna 19 og 20 en held að það sé ekki alveg búið að ákveða það. Annars er voða lítið að frétta nema allt gott. Bara tuttugu og fjórir  dagar til jóla;)

 Jóhanna 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 21:28:26 / jomagu

Ég bloggaði.

Jæja sælt veri fólkið. Ég bara nenni alls ekki að blogga en skelli hérna einu litilu.

Það er bara ekkert að blogga um.  Fór til Rvk um helgina og þar eiddi ég ekki krónu!!!!! Svo bara skólinn. Það er búið að velja leikrit, wake me up before you gogo, er búin að lesa það það er svo sem ágætt er ekki búin að fá hlutverk en flestir í tíunda bekk eru komin með hlutverk.  En annars voða lítið annað að seiga frá.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 16:42:10 / jomagu

Haustfagnaður

Haustfagnaður

 

Á fimmtudaginn var Haustfagnaður í Lundi og 80´s var þema kvöldsins. Ég var kokkur, í hjlómsveit og í tískusýningu. Fyrs að ég var aðstoðarkokkur þá þurfti ég að verða eftir,eftir skóla með skreitingarnefnd og hinum aðstoðarkokkunum. Ég, Silja og Magga vorumí því að gera salatið en Andri og Einar voru að skera gulrætur. Eftir það var voða lítið að gera. Gríma gerði í hárið á mér og Perla var í því að mála fólk. Skreitingarnefnd var búin að gera salinn fínann og hjlómsveitirnar voru búnar að æfa nokkrum sinnum yfir lögin. Klukkan sjö átti þetta að byrja en það seinkaði aðeins. Þegar þetta var byrjað voru  tvö skemmtiatrið áur en matur var borinn framm, ég var í því að setja  gularbaunir og gulrætur á diskana. Þegar maturinn var búinn þá tók hljómsveitin DJamma við og í henni er ég, Silja, Gríma, Ke og Freydís og við spiluðum tvö lög. Eftir hljómsveitina var tískusíning sem allir voru í fötum frá 80´s. Ég var í henni því að Helga var veik og ég fór í hennar stað og það var bara nokkuð gaman. Eftir tískusíningu var mínu hlutverki lokið en svo var ég beðin um að fara með kökur framm (eftiréttinn). Eftir eftriréttinn spilaði hljómsveitin spangirnar en í henni eru Aðalbjörn, Einar, Hjlati , Baldur og Heimir, þeir spiluðu tvö lög og í lokinn þá var boðið uppá singastar, ég og Magga störtuðum því með því að singja eitt lag. Þá var bara farið að líða undir lok. Ég þurfti að fara snemma en ég veit að sumir voru ti lað verða tólf að ganga frá. En ég hugsa að þetta hafi heppnast alveg ágætlega.

 

Föstudagur

Í gær mætti ég í kdólann og það voru allir frekar þreittir. Vorum mikið í því bara að ganga frá og svoleiðis en fórumaðeins í bækurnar. Svo kom Silja með mér heim og við buðumst til þess að gera matinn sem var vel þeigið frá móður sem þarf að læra.  Við þurftum líka að fara á pósthúsið og ná í gleraugun hennar mömmu og fyrst ég var þar þá ákvað ég að gá hvort ég ætti einhvern pening inná kortinu mínu, hélt ég ætti í mesta lagi tvöþúsund kall en annað kom í ljós ég var bara alveg moldrík. Því næst fórum við í búðina og keyptum í matinnog nammi fyrir kvöldið og þar hittum við Grímu og hún slóst í för með okkur og við buðum henni í mat. Við fórum heim og við höfðum keypt kókósbollur eða Gríma keypti þær svo við fórumí kappát. Svo var búið að bjóða okkur í kaffi klukkan fjögur en það seinkaði til hálf sex og fengum við svona ljómandi góða köku hjá Hafþóri og Elvari.  Eftir það fórum við  að útbúa matinn sem sé pítur og eikkað salat.  Þröstur og Kristjana voru komin og við spjölluðum heil lengi við þau, Þau skutluðu okkur svo á félagsstarf sem var í Lundi. Það var rafmagnslaust kvöld en mér fannst ekkert svo skemmtilegt en ágætt þó. Fékk far með Gogga heim og horfði á mynd með Þresti og Kristjönu þegar ég koma heim eða reyndar sofnaði ég svo ekki má seiga að ég hafi horft á hana.  En ég er lítið búin að vera að gera í dag Elvar og Hafþór komu í morgun og ég bakaði handa þeim muffins og svo fór ég til Auðar og Guðrúnar eftir hádeigi og er að fara þangað aftur eftir smá en látum þetta nú gott heita í bili.

 

Jóhanna

 

P.s. Það gengur mjög illa að setja myndir inná en ég reyni mitt besta og læt vita þegar það gengur.


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 17:20:57 / jomagu

Samskólamót og fleira.

Samskólamót

Við ætluðum að legga af stað klukkan 12 í seinasta lagi en ekki var lagt á stað fyrir korter yfir afþví að það þurfti að bíða eftir kennurum. Á leiðinni var faraið í hárgreiðslu leik sem Gríma stjórnaði og eitthvað var gert við hárið á Andra, Baldri, Elvar og Heimi, (tek það fram að það kláraðist næstum heil gel túpa). En þegar komið var á áfangastað þá var stoppað í sjoppu og keypt nammi. Eftir það þá var haldið í íþróttahúsið og keppt í fótbolta, og til að gera góða sögu skemmtilegri þá þarf að seiga frá því að lið 2 eða liðið semég var í það vann og er voða stolt af því, eftir fótboltan þá var sing star keppni og frjálst fyrir hina var voða lítið að gera söng tvö lög en lét mér bara leiðast með Silju, en það er nú gaman að seiga frá því að hún Magga vann sing starið.  Í matinn var pizza og franskar ég borðaði eina sneið og smá franskar og fyrir það borgaði ég 1500 kr er ekki sátt með það.  Svo var komið að ballinu en það var nú ekki skemmtilegt til að byrja með svo að ég sat bara og beið en þegar fór að líða á þá var farið að verða gaman en svo þurfti að halda heim á leið. Þegar átti að leggja af stað þá komst það upp að Heimir hafði gleimt úlpunni sinni og þurfti að bíða eftir því svo að ekki var lagt af stað fyrren seinna en það var nú í lagi. Ég sat hliðiná Elvari á leiðinni heim og skemmti mér konunglega. Var orðin frekar þreitt þegar ég kom heim þótt klukkan væri rétt að verða tólf en ákvað nú að fara að sofa vegna þess að ég þurfti að mæta klukkan sjö í vinnu á laugardagsmorgni og var að vinna til fjögur.

 

Sunnudagurinn

Já ég lá nú bara í leti til að byrja með en svo kom Hafþór og við bökuðum þessa dýrindis köku. Töluðum við Andra á msn og hann ákvað nú að koma líka og gerði með okkur kremið og borðaði kökuna með okkur svo hringdum við í Gogga og spurðum hvort hann væri ekki til í að koma í Íþróttahúsið, hann játaði því og við fórum þangað og líka Pétur,Einar, Baldur og Andrés. Við vorum í fótbolta og fleiru en svo fórum við heim ég fór að borða og fór svo til Andra að horfa á Næturvaktina og þar voru líka Hafþór, Goggi, Hlynur, Einar og Baldur og þetta var alveg ágætis kvöld.

 

En í dag er ég bara búin að vera í skólanum og var að koma heim úr vinnu og settist hér fyrir framan tölvuna og bloggaði þetta góða blogg. Látum þetta nú gott heita og ég reyni sem fyrst að setja mydnir af samskólamótinu inná.

 

Jóhanna

  

KOMMENTA


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4